|
28.03.2007 16:02:20 / tobbinn
Myndasíða dömunar er www.123.is/2901 hun er læst en hægt er að
sækja um aðgang og er þð gert þar.
Daman fékk nafn á sunnudaginn og heitir hún Salka
Þorbjarnardóttir.
Svo er bara að sækja um aðgang og kíkja á dömuna
Kv Hulda Karen og Salka
»
20.02.2007 14:23:42 / tobbinn
Jæja þá er daman orðin 3ja vikna og var hún viktuð í dag og er
hún orðin 5680 (geri aðrir betur) búin að þyngjast um 630 gr á 11
dögum þannig að hún er allavega að fá nóg að borða þessi elska.
Annars er bara allt gott að frétta héðan úr Andrésbrunninum daman
bara spök og foreldrarnir líka.
Kv.
»
01.02.2007 11:23:26 / tobbinn
Jæja Daman mætti loks á svæðið, hún var nú ekki alveg á því að koma
sjálf og var ég því sett af stað eftir 41+ 4. Hún var sem betur fer
ekki alveg eins stór og búist var við en nógu stór var hún,
4790 gr og 54 sm. Öllum heilsast vel.
KV.
»
04.01.2007 19:20:14 / tobbinn
Jæja 38 vikur + ótrúlegt að þetta sé að verða búið. Trölla er nú
samt ekkert búin að skorða sig þannig að það virðist sem hún vilji
ekkert koma alveg strax. Vona nú að hún fari nú að drífa í því
vegna þess að ég vil síður þurfa að leggjast niður og hringja á
sjúkrabíl ef vatnið fer. EN allavega við erum bara í góðum gír
krakkinn sennilega að detta í 18 merkurnar núna þannig að það
verður bara stuð að fæða 20+ marka barn þegar henni hentar að
koma.
Kv Hulda KAren og Trölla
»
02.11.2006 19:04:58 / tobbinn
Jæja þá er vika 30 farin af stað og 3/4 búnir, svei mér þá þetta
verður búið áður en ég veit af. Ef það eru 11 vikur í frumburðinn
hvað eru þá margar vikur til jóla, og ég ekki byrjuð að hugsa um
hvað ég eigi að gefa fólki í jólagjöf. Mamma kom frá spáni í dag og
mín sleppti sér aðeins í verslinu, þetta barn mun eiga morgun,
hádegis og síðdegisdress fyrir hvern einasta dag því eins og
flestir sem mig þekkja vita þá þykir mér ekki leiðinlegt að versla
heldur (á kannski ekki langt að sækja það).
Jæja þar til síðar.
»
16.09.2006 13:00:11 / tobbinn
Þetta bloggleysi stafar ekki af leti í mér heldur lifi ég bara
einstaklega viðburðarlitlu lífi. Dagarnir skiptast í að vinna og
eyða peningum sem er ekki nógu gott þar sem ég fæ ekkert
sérstaklega mikið af peningum fyrir vinnuna mína. Fjárhagurinn er
ekki að gera góða hluti þegar hobbíið er að versla.
Muna: EKki eyða peningum sem eru ekki til (27 ára og ætla aldrei að
læra þetta).
»
04.09.2006 20:23:58 / tobbinn
Jæja þá er 20 vikna sónarinn búinn og kynið komið á hreint. Var
seinkað um nokkra daga þannig að von er á fumburðinum 17. janúar í
stað 13. Annars gengur allt vel, mætti halda að ég hefði aldrei
gert neitt annað en ganga með barn. Fæ sennilega að kenna á því
þegar barnið kemur því þetta er búið að vera of þægilegt til að
vera satt. Sjáum til
Jæja seinna
»
15.07.2006 18:39:12 / tobbinn
»
|